Jæja, þá er María mín líka búin að eiga afmæli orðin 6 ára stelpan en hún átti afmæli núna þann 7. Vá 6 ár liðin! Ég er ekki alveg að trúa þessu, það sem tíminn líður hratt. Skrýtið þar sem ég eldist ekkert sjálf ;-Þ. Þetta var í fyrsta skiptið sem María las afmæliskort sjálf... ekkert smá dugleg orðin að lesa og skrifa. Það sem maður elskar þessi börn sín, ég er ekkert smá rík :-)
Elsku María mín til hamingju með daginn þinn ég elska þig litla ljósið mitt :-)

3 ummæli:
Bæði myndin af Svavari í færslunni hérna á undan og þessi hérna af henni Maríu eru teknar um áramótin síðustu, fyrir nærri 1 ári síðan. Hárið hefur vaxið töluvert síðan hjá þeim báðum :-D Set fljótlega inn nýlegar myndir af þeim... lofa því -Ág.
Innilegar hamingjuóskir þótt seinar séu til litlu frænku í Reykjavík frá okkur öllum hérna í snægilinu :D
kv. Sæunn
Takk Sæunn mín, skila því :-)
Skrifa ummæli